Ég skil þetta ekki.

Er ekki nóg fyrir þessa blönku þjóð að hafa einn forseta og annan forvera hans á forsetalaunum.

Ekki kaus ég Ólaf á sínum tíma, en ég verð að segja að ég er mjög sátt við hann á forsetastóli og mun kjósa hann næst. Hann hefur svo sannarlega staðið með þessari þjóð þegar á reyndi.

Og að nefna til sögunnar einhverjar snoppufríðar stelpur úr sjónvarpinu finnst mér lýsa hvað þessi umræða er á lágu plani.

Líklega allt komið frá andstæðingum Ólafs sem þola ekki að maðurinn er ekki tilbúinn til þess að skríða flatur fyrir stjórnvöldum.

Málið hjá þessu fólki virðist vera að finna bara einhvern/einhverja sem ekki hefur vakið upp skandal og gera að forseta.

Nei takk. Ég vil að sá sem gefur kost á sér geri það vegna ótæmandi vilja til þess að vinna þessari þjóð gagn, ekki til þess að hampa sjálfum sér og baða sig í kastljósi fjölmiðla.

Þar fyrir utan, þá hafa umræddir kandidatar ekki gefið kost á sér.

Ólafur Ragnar er fínn þar sem hann er og ekki skemmir það að hafa hina glæsilegu og jákvæðu Dorrit hans við hlið.

 


mbl.is 66% vilja nýjan forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er gott og blessað....

....að hún sé ákærð.  

En við bíðum eftir því að hákarlarnir verði slægðir, enda löngu kominn tími til.

50 milljónir, það er bara tittlingaskítur miðað við uppþornaða fílataðið sem sérstakur saksóknari á eftir að plægja í gegnum. 


mbl.is Ákærð fyrir fjárdrátt hjá Kaupþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegur verðmunur

Það verður að segjast eins og er að lyfjaverð hér á landi er ótrúlega hátt.

Ég á t.d. mjög erfitt með að skilja að bólgueyðandi lyf sem ég tek stundum kosti tæplega tvö þúsund hér á Íslandi fyrir 100 töflur, en sama lyf kosti 1,85 evrur á Spáni fyrir 40 stykki. Og reikni nú hver sem vill hvað 100 töflur kosta þá.

Það bara hlýtur að vera eitthvað verulega athugavert við slíkan verðmun.


mbl.is Dýr lyf valda útilokun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er bílstjórinn sem flautar.

Ég hef enga þolinmæði gagnvart þeim sem keyra hér um og brjóta umferðareglur vinstri, hægri.

Ég er orðin hundleið á tillitsleysi og frekju íslenskra bílstjóra. Sem betur fer eru sumir sem haga sér vel en svo eru aðrir sem þjösnast áfram algjörlega aleinir í heiminum - taka ekki tillit til eins né neins.

Við hjónin rekum tvo bíla, en yfirleitt fær sá sem er meiri bensínhákur að vera heima ef hægt er, nú á þessum síðustu og verstu tímum.

Samt sem áður höfum við lent í því á árinu 2011 að sex sinnum var keyrt utan í bílana okkar.

Í öll skiptin nema einu forðaði ökuníðingurinn sér á brott án þess að láta vita um tjónið. Sá sem ekki forðaði sér var vinnufélagi mannsins míns sem keyrði inn í bílstjórahlið ódýrari bílsins okkar. Hann lét vita.

Í eitt skiptið var keyrt utan í sama bíl af svörtum Benz jeppa. Þegar ökumaðurinn áttaði sig á því hvað hafði gerst fór hann út úr bílnum, ca. 16 ára gutti (líklega með æfingaleyfi) skv. sjónarvottum, pabbinn snaraði sér út úr bílnum farþegamegin skipaði stráknum inn og keyrði sjálfur á brott, eftir að hafa skoðað tjónið á bílnum okkar.

Við vorum heppin, þegar sonur minn kom út (en hann var á bílnum þetta kvöld) gaf sig fram sjónarvottur sem hafði tekið niður númerið á Benzinum og vil ég hér bera henni mínar bestu þakkir.

Eigandi umrædds ökutækis reyndi fyrst að þræta en gafst nánast strax upp þegar starfsmenn www,arekstur.is höfðu samband við hann og sögðu honum frá því að sjónarvottar hefðu tilkynnt um tjónið.

Öll þessi tjón á tiltölulega nýjum bíl og virðulegum eldri jeppa hafa kostað okkur hundruðir þúsunda króna á þessu ári og flest hafa þau lent á okkur.

Já ég veit að það er allt í lagi að keyra um á beygluðum bíl, en þegar bíllinn er nýlegur þá er áríðandi að halda honum við svo hann tapi ekki verðgildi sínu.

Gamli virðulegi jeppinn hins vegar varð fyrir tjónum á vinstra afturljósi - það er ekki hægt að bjóða samferðafólki okkar í umferðinni upp á að keyra um með ónýtt afturljós. Við erum búin að kaupa tvö slík á árinu á 35 þúsund krónur og telst þá ekki rétting og sprautun með.

Þess vegna er ég orðin að bílstjóranum sem flautar.

Ég flauta þegar fólk er að frekjast um í umferðinni.

Ég flauta þegar gangandi vegfarendur fara yfir á rauðu ljósi.

Ég flauta þegar fólk beygir til vinstri inn í hringtorg (varð vitni að slíku um daginn).

Ég flauta þegar fólk æðir á móti umferð án þess að gera sér grein fyrir því að þau eru á einstefnugötu og þannig gæti ég haldið áfram og áfram.

Þegar sonur minn sem er 18 ára var í æfingakennslu hjá okkur þá reyndum við að innprenta honum góða aksturssiði - enda báðir foreldrarnir tjónlausir frá upphafi - og við innprentuðum honum líka að allir aðrir í umferðinni væru asnar - hann væri sá eini sem væri með fullu viti og það væri á hans ábyrgð að koma sjálfum sér og samferðamönnum ólöskuðum heim.

Sem betur fer - hann er nýbúinn að fá nýtt skírteini eftir eitt og hálft ár á vel heppnuðum akstri með bráðabirgðaskírteini.

En í framtíðinni mun ég verða bílstjórinn sem flautar þegar mér er misboðið.


Gaman að gera góð kaup ;)

Ég tel mig nokkuð hagsýna húsmóður. Ég reyni að kaupa skynsamt inn, þó oft lendi ég í því að þurfa að henda mat, sérstaklega brauði og grænmeti. Sveisvei og skamm.

Og af því að ég er reyni að vera hagsýn húsmóðir þá skoða ég oft hagstæðustu kostina við kaup á húsgögnum og hlutum til heimilisins.

Það verður að segjast eins og er að það er auðvelt að láta glepjast og kaupa það sem maður heldur að mann vanti og kaupa svo meira - og smá í viðbót - svo allt sé nú í stíl.

Ég hef sem betur fer ekki fallið í þessa gryfju - þökk sé ömmu minni í denn sem skammaði mig fyrir að henda stórum flóka af tvinna (hvað ertu að gera krakki - leystu úr flækjunni og við notum þetta aftur). Blessuð sé minning hennar.

Nei ég sóa ekki að óþörfu í heimilisbúnað, ég fer á Bland.is, þar er stundum/oft hægt að gera góð kaup.

Ég var lengi búin að leita að sófaborði í búðum og þau sem mér líkaði kostuðu formúu og vinstri handlegg (ég er örvhent ;), sem ég sem hagsýn húsmóðir var ekki tilbúin til þess að borga.

En á Bland.is fann ég þetta frábæra sófaborð - sem passaði við allt sem áður var til staðar á heimilinu á heilar 6.000 krónur. Ég var mjög sátt við það og líka fallega þrískipta málverkið af plómutré í blóma sem ég keypti fyrir margt löngu á 15.000. Stórt verk sem nær yfir ca. 5 metra breiðan vegg og sómir sér vel hjá okkur. Nokkrir sem ég þekki hafa keypt verk frá sama listamanni og allir segja að mitt stykki sé flottast.
En sumt er skrítið á Bland.is og annað er klikkað.
Svo ég nefni nokkur dæmi.

Til sölu er Antik - tölvuborð.

Til sölu er sófasett - þarf að skipta um áklæði og grindin er léleg.

Svo ruglar fólk með antik og retro endalaust, svo skoðar maður meðfylgjandi mynd - úpps sófasett eins og ég ólst upp við talið eðalantík - hvað er ég eiginlega gömul - hvar týndi ég tölunni á árunum...?

Til sölu er flöskustatíf úr RF á kr. 1.500 (kostaði þá í RF kr. 500)

Og núna nýlega: hornbaðkar með nuddi fæst gefins gegn því að verða sótt. Einn var búinn að svara þegar ég skoðaði auglýsinguna.

Nokkru seinna sá ég auglýsingu um slíkt baðkar á 150.000 krónur.

Já það er svo sannarlega hægt að gera góð kaup ef maður er bara nógu duglegur að fylgjast með og ef maður gerir sér greini fyrir því að eins manns drasl er annars manns fjársjóður.
:)

Ekki láta ólíklega gott tilboð ganga þér úr greipum.


Ég á systur og bróður.

Ég er afar þakklát fyrir það að við systkinin eigum gott samband.

Ég sem er yngst var aðeins 16 ára þegar mamma okkar dó eftir langvinn veikindi. Og mikið hef ég oft þurft að stóla mig á stuðning minna góðu systkina og alltaf hafa þau reynst mér vel.

Fyrir það er ég ævarandi þakklát.

Á hverju ári frá því mamma okkar dó - langt fyrir aldur fram, höfum við systkinin haldið upp á afmælið hennar. Stundum skeikar nokkrum dögum til eða frá en það er oft vegna þess að afmælisveislan hennar mömmu miðast oft við það hvort bróðir minn sé í landi, en hann er sjómaður. Samt hefur hann misst af allnokkrum afmælisveislum og ég af einni. Það var árið sem ég bjó í Danmörku og mikið saknaði ég fólksins míns þá, jafnvel meira en á jólunum.

Í ár hefði mamma orðið 79 ára og við héldum fína veislu en á næsta ári stefnum við á risaveislu í tilefni að 80 ára afmæli hennar með öllum afkomendunum að ári.

Mamma var aðeins 44ra ára þegar hún kvaddi þennan heim eftir langvinn veikindi. Það var í október sem hún kvaddi. Við börnin söknuðum hennar alltaf og strax í nóvember þegar leið að afmælisdeginum hennar ákváðum við að halda veislu henni til heiðurs.

Ég man líka þegar hún varð fertug, þá var hún á Heilsuhælinu í Hveragerði og við fórum öll til hennar til þess að fagna deginum hennar. Mér er það alveg sérstaklega minnisstætt að þegar mig langaði í eitthvað annað en vatn að drekka sagði mamma að það væri hægt að fá ávaxtasafa á ákveðnu borði. Þangað skundaði hnátan ég - hellti mér vænan slurk af "ávaxtasafa" í glas og settist að borði. Síðan nokkru seinna ákvað ég að nú væri tímabært að svala þorsta mínum og tók mér stóran sopa af "ávaxtasafanum" sem því miður reyndist vera sýrð mysa. Ojojbjakk. Mér verður alltaf hugsað til þessarar sögu þegar ég les eða heyri sögur um það hvernig íslendingar lifðu á fyrri öldum. Og er þakklát fyrir það að lifa hér og nú og þurfa ekki að gera mér sýrða mysu að góðu sem svaladrykk.

En þrátt fyrir mysusoparaunir og slíkt ojbjakk, þá höfum við systkinin spjarað okkur nokkuð vel.

Kannski hefðum við gert betur með mömmu okkur við við - kannski var í þessum hóp Nóbelsverðlaunahafi - en það skiptir okkur ekki neinu í dag. Við eigum öll mannvænleg börn og sum okkar enn vænlegri barnabörn. Við leggjum það í dóm sögunnar. Og vegna þess að við vitum af hverju þau eru komin vitum við að þau munu spjara sig í óvissri og ókominni framtíð.

Eins og pabbi minn sagði alltaf "það verður allt í lagi" 


Algjörlega glötuð þjónusta.

Ja hérna. Núna er tölvan mín búin að vera biluð í ca. 6 vikurAngry  Þar af er hún búin að vera á verkstæði í mánuð og ekkert bólar á varahlutumCrying Og vandamálið er - brotin lömBlush  Ég þorði ekki að nota hana með aðra lömina svona laskaða þannig að ég fór með hana á verkstæði.

Og ég bara bíð og bíð, mér finnst þetta algjörlega fáránlega léleg þjónusta og er orðin verulega pirruð - aargurrogaaarggDevil

 


Glaður hundur kominn heim úr orlofi :)

Þetta var bara hið besta orlof hjá mér Zenjór Freddý Zanzibar. 

Var bara laus við familíuna í heilar tvær vikur og þurfti ekkert að fara út með þau til þess að viðra og í stað þess að vera á hundahóteli gisti ég í fimm stjörnu lúxusgistingu með Ronju vinkonu minni og manneskjunni hennar.  Ég skemmti mér alveg konunglega - gaman að hafa svona skemmtilega og sæta tík að eyða dögunum með, við leik, kúr og át Smile Mér tókst alveg að bræða hjarta hótelhaldarans og við Ronja eyddum nóttunum í dyngju hennar -  uuuumm - bara kósý hjá okkur öllumHeart

En í dag dró til tíðinda - fríið á enda Undecided  Forustufólkið mitt mætti á svæðið, mamma og pabbi birtust allt í einu. Ég heyrði eitthvað hljóð í fergúmmífættu stálskrímsli - og kannaðist strax við það. Var þetta ekki hljóðið í rauða skrímslinu hennar mömmu?  Úpps, ég varð allur smá stressaður - er fríið mitt búið - hvað er eiginlega að gerast? Woundering

Svo birtust þau, þá gat ég nú ekki á mér setið, ég varð alveg ofsakátur að hitta þau Happy voru þau komin til þess að vera í fríi með mér? Ronja vinkona mín varð líka alveg hrikalega spennt, henni finnst svo gaman að fá gesti Smile

Ég gleymdi mér alveg þegar þau birtust, hoppaði og skoppaði og gelti hátt og mikið af kæti Happy Ronja var líka alveg rosalega glöð að hitta ferfætlingana mína og hoppaði jafnfætis upp í fangið á mömmu - þá varð ég nú smá abbó svo ég sé nú alveg heiðarlegur Frown

Nú er ég komin heim í húsið okkar og það er nú bara mjög notalegt þrátt fyrir að ég sakni kannski vinkonu minnar og manneskjunnar hennar svoldið, en vonandi hittumst við fljótlega. Svo segir mamma mér að kannski komi Ronja einhvern tímann að heimsækja mig - það væri nú bara mjög notalegt InLoveSamt veit ég ekki hvað kallinn hann pabbi segði ef tveir ferfætlingar myndu skríða upp í rúm til hans Devil en ég treysti því að mömmu takist að tala hann til Halo

Ég er bara mjög sáttur við fríið mitt og væri alveg til í að endurtaka það einhvern tímann Happy

Sendi voffaknús til Ronju minnar og manneskjunnar hennar Heart


Freddý hundur Zanzibar vantar hjálp

Ég er bara lítill hvutti sem hef lifað í bráðum 8 ár.  Öll mín ár hef ég dvalið hjá minni góðu hjörð þar sem mamma Sigrún er forustuynjan í mínum huga.  Samt hef ég orðið vitni að því oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að hún ræður nú ekki yfir öllu.

Allir okkar dagar eru eins og ég gæti helst hugsað mér.  Mamma og pabbi skreppa aðeins frá (í vinnuna held ég - hvað sem það nú er) svo koma þau heim og ég - alveg hrikalega glaður að hitta þau - flaðra upp um þau - pabbi segir hættu nú kallinn minn - en mamma - mamma hún er best í hjörðinni, hún knúsar mig og kyssir og dansar við mig. Vááá ég er alveg hrikalega glaður að eiga svona góða hjörð. 

En mér berast nýjar fréttir.  Öll fjölskyldan - ég meina hele familien er á leiðinni í frí. Ég er nú ekkert svo vitlaus þó ég sé hundur, kommon er ég á leiðinni á hundahótel enn eina ferðina.  Mamma - manstu hvað ég var fúll út í þig að skilja mig eftir á hundahótelinu þarna um árið.  Þú meira að segja komst ekki spönn frá rassi án þess að trýnið mitt væri vel fast við þig, loksins þegar þú komst aftur til mín.  Það segir aðeins eitt: Þú losnar ekkert við mig kella... OK gamla - ég veit að þú ert sorrý, en ég er enn meira sorrý en þú. Hrikalegt að vera bara dömpað á hundahótel - eins og ég elska ykkur mikið og eins mikið að ég veit að þið elskið mig.   

Elsku mamma mín og pabbi ég lofa að vera alltaf góður hundastrákur þið eruð besta hjörðin í heimi og mest af öllu myndi ég vilja fara með ykkur í frí, en því miður er það ekki hægt vegna ýmissa takmarkana sem þetta land býður okkur uppá

Kommon - ég er hreinlátur hundastrákur sem er lítið fyrir það að sniffa út um allt - erfði snyrtimennskuna frá systur minni.

Ég Freddý Zanzibar er smá stressaður - vonandi vill einhver fóstra mig í tvær vikur þegar tvífætlingarnir fara í frí.

Ég er góður strákur, sem elska lifrarpylsu og almennt knús.  Endilega hafið samband við mömmu mína ef þið viljið fóstra yndislegan hvutta í tvær vikur, seinni hlutann í júlí.

 


Þakklát ungamamma

Fyrir nokkru skruppum við hjónin í bíltúr í nágrenni bæjarins og var ætlunin að finna góðan stað til að viðra Zenjórinn.

Þar sem við ökum þarna sem betur fer á hægri ferð sjáum við brúnan hnoðra á veginum.  Bóndinn stöðvaði til þess að hleypa mýslu litlu yfir götuna, en þá sáum við að þetta var fuglsungi. Áður en bíllinn stöðvaði hafði ég tekið eftir tjaldi sem var eitthvað að flögra þarna í kringum okkur með miklum vængjaslætti.

Við sátum róleg og leyfðum litla hnoðranum að komast í gott skjól og þá gerðist það merkilega.

Tjaldamamman flaug alveg upp að glugganum hjá mér og örskotsstund horfðumst við í augu og hún kinkaði til mín kolli.  Mér fannst svei mér þá að úr augum hennar skini þakklæti og með þessu hefði hún verið að þakka okkur fyrir að gefa litla unganum hennar tækifæri til þess að komast í öryggið hjá mömmu. Ég mun seint gleyma þessari upplifun, fuglinn var alveg upp við bílrúðuna hjá mér.

Í mínum huga er alveg öruggt að dýrin hafa tilfinningar og mér finnst þetta sanna það.

Það þarf varla að taka það fram að nú um stundir fær Zenjórinn ekki að hlaupa um frjáls, heldur er hann alltaf í taum, alveg sérstaklega til þess að vernda fuglana og varp þeirra.

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband