19.11.2008 | 17:58
Að sjóða slátur er þrautin þyngri.
Ég eins og aðrar húsmæður hef nú undanfarið reynt að vera hagsýn, eða segjum hagsýnni en venjulega, enda ekki þekkt sem mikil eyðslukló. Svo ég keypti slátur, nokkra keppi í frystinn. Ég er nú ekki "svo" hagsýn að ég taki slátur.
Nú er ég búin að gera nokkrar tilraunir til þess að hafa þennan eðalmat á borðum fyrir fjölskylduna, en alltaf skelli ég keppunum ósoðnum í frystinn aftur. Og ástæðan er annríki hins nútíma Íslendings.
Mér er sagt að það eigi að sjóða blóðmörinn í þrjá tíma og lifrarpylsuna í tvo og hálfan tíma.
Þannig að það kallar á að kokkurinn verður að vera kominn heim lágmark þremur tímum fyrir kvöldmat. Það hefur tekist nokkrum sinnum, en þá voru einn eða tveir að vinna og Steini minn á æfingu. Stundum eru tveir heima á matmálstíma og stundum bara einn. Það er lítið varið í að sitja einn að slíkum krásum. Ekki vildi bóndinn fá slátur í stað sunnudagssteikarinnar. Þá er bara að reyna enn og aftur.
Þetta er einföld formúla en erfitt að fara eftir. Einn heima til að elda þremur tímum fyrir mat, hinir mættir á réttum tíma.
Pizza í matinn i kvöld handa strákunum, ekki mjög hagsýnt, skyr handa stelpunum, mjög hagsýnt. Hlýtur að jafnast út.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook

saran
huxa
jensgud
klossi
ragnarfreyr
eiriksson
hordurt
kreppan
zeriaph
jonaa
vinaminni
solthora
asdisomar
siggibragi
curvychic
amman
heidarbaer
iceberg
aevark





Athugasemdir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 20.11.2008 kl. 01:46
Ég sýð slátrið alltaf mun styttra tíma heldur en þessa þrjá sem gefnir eru upp, læta oft duga klukkutíma eða einn og hálfan og ég get ekki séð að það sé hrátt, ekki einu sinni í miðjunni.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 23:12
Sauð slátrið í dag, en svo illa vildi til að strákurinn minn fékk slátur í skólanum. Þar var það sörverað með uppstúf, það hef ég aldrei heyrt. En honum fannst maturinn að sjálfsögðu miklu betri hjá mömmu. Sauð alltof mikið, setti afganginn í frystinn og ég hélt á tímabili að þangað ætlaði hundurinn líka.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 20.11.2008 kl. 23:12
Ég ætla að prufa styttri suðutíma næst. Blóðmörinn sprakk eftir ca. 2 tíma, þrátt fyrir að ég væri búin að breyta honum í gatasigti með endalausu pikki í hann.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 20.11.2008 kl. 23:28
Ég elska líka að borða slátrið kalt þegar það hefur staðið inn í ísskáp þá er gott að skera það niður í sneiðar og drekka kalda mjólk með því. Vandist því í heimavistaskólanum vegna þess að ég vildi ekki hafragrautinn. Slátur er líka mjög gott að steikja í sneiðum ert þú ekki af þeirri kynslóðinni sem fékkst þannig matreiðslu á því. Ég er vön að borða slátur með uppstúf eða hvítri sósu eins og ég kalla hana og með soðnum rófum eða rófustöppu.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 14:19
Sjóða slátrið kvöldinu áður en þú ætlar að borða það og hita það svo bara upp. Svo má alltaf borða kalt slátur og lifrarpilsu.
Gústa systir (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 15:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.