21.12.2009 | 13:32
Ömurleg jólagjöf til þjóðarinnar
Endalaust virðist þessi ríkisstjórn ætla að hækka álögur á almenning í þessu landi.
Hækkun virðisaukaskatts hefur bein áhrif á stöðu verðtryggðra íbúðarlána og má eiga von á þó nokkurri hækkun umræddra lána í kjölfar hækkunar virðisaukaskatts.
Ég verð líka að segja að ég er afar ósátt við framlengingu á leyfi til þess að taka út séreignarsparnað. Hvað er ríkisstjórnin að krukka í einkasjóði fólks. Margir sem ég þekki hafa virkilega strögglað til þess að greiða í séreignasparnað, enda veitir flestu vinnandi fólki ekki af öllum þeim krónum sem þau vinna sér inn.
En þegar allt er hér farið til fjandans þá opnar ríkisstjórnin fyrir úttektir úr þessum einkasjóðum og hlakkar svo í henni, vegna þess að þarna fær hún auknar skatttekjur.
Eftir sitja með sárt ennið, launþegar og atvinnulaust fólk sem var algjörlega stillt upp við vegg, neyddust til þess að taka út sparnaðinn, vegna þess að allt hrundi og sjá nú fram á áhyggjufullt ævikvöld, enda búnir að eyða margra ára sparnaði til þess að greiða niður lán, sem bara hækka og hækka, þrátt fyrir einhverjar innborganir.
Þessu liði hlýtur að sveljast á jólasteikinni.
|
Virðisaukaskattur 25,5% |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


saran
huxa
jensgud
klossi
ragnarfreyr
eiriksson
hordurt
kreppan
zeriaph
jonaa
vinaminni
solthora
asdisomar
siggibragi
curvychic
gudjul
amman
heidarbaer
iceberg
aevark





Athugasemdir
Ég skil ekki þessa skjaldborg um heimilin.
Fólk borgar og borgar af húsnæðislánum sínum, tugi þúsunda á mánuði. En lánin hækka bara og hækka.
Og nú er verið að hækka skatta meira sem taka gildi nú um áramótin, þetta hækkar húsnæðislánin enn meira.
Ég held að þetta sé nær GJALDborg, frekar en skjaldborg.
Það á greinilega að blóðmjólka almúgan endalaust, á meðan eru útrásravíkingarnir og auðmennirnir að fá milljarða afskriftir af lánum sínum og búa í lúxus erlendis eins og ekkert hafi í skorist.
Ég sé ekki betur en að þessi ríkisstjórn sé algjörlega óhæf til að koma okkur út úr þessum vanda.
Þótt vissulega skrifast þetta á þá flokka sem voru hérna við völd á síðustu árum, en það breytir því ekki að núverandi stjórnvöld geti ekki gert mistök og gert hlutina illa.
Þjóðstjórn held ég að þurfi að koma á, ekki seinna en strax.
Hæfileikaríkasta fólkið, menntað á sínu sviði og með góða reynslu sett í ráðuneytin. Sleppa pólitíkinni. En að fólk fái ráðherrastóla bara afþví að það er næst í röðinni í sínum flokki.
Eins og núverandi fjármálaráðherra. Atvinnupólitíkus, útbrunninn sem hefur verið að nöldra á alþingi í 30 ár. Menntaður jarðfræðingur. ... að hann sé í fjármálaráðuneytinu nú þegar hin versta fjármálakrísa sem Ísland hefur lent í.
Er hann rétti maðurinn ??? hefur hann menntun í þetta ? svarið er því miður nei.
Mér líst ekkert á þetta. Eina lausn VG er að hækka skatta og búa til nýja skatta á meðan lausnir Samspillingarinnar er að fara í ESB þótt 70% af þjóðinni sé á móti því.
Guð hjálpi okkur.
AceR, 21.12.2009 kl. 17:37
Heyr, heyr.
Sigrún Aðalsteinsdóttir, 22.12.2009 kl. 10:47
Sammála ykkur, þetta fólk hefur enga getu né vit til að stjórna landinu. Og það sem verra er, þau taka ekki mark á neinum nema sjálfum sér því miður.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 27.12.2009 kl. 21:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.