10.8.2008 | 17:59
Svangur þjónn eða falin myndavél?
Maður lendir stundum í furðulegum uppákomum sem fólk á jafnvel bágt með að trúa að geti verið satt. Eitt sinn lenti ég í einni slíkri á ferðalagi á Ítalíu, þegar ég var unglingur.
Við vorum sex saman á götukaffihúsi í Napólí. Ferðafélagar mínir voru að væta kverkarnar með kaffi eða bjór, en fátt var í boði sem freistaði mín, svo ég rölti yfir götuna til að kaupa mér hamborgara í take away búllu. Svo þegar ég kem til baka með minn girnilega hamborgara sest ég til borðs og panta mér drykk hjá þjóninum. Sá kom að vörum spori með kókglas og um leið og hann skilaði af sér drykknum, gerði hann sér lítið fyrir og beit risabita af hamborgaranum mínum.
Það þarf ekki að orðlengja það að uppi varð fótur og fit við borðið, ferðafélagar mínir afar ósáttir við framkomuna við unglinginn, en þjónninn glotti bara. Að sjálfsögðu bauð ég svanga þjóninum að éta það sem eftir var af hamborgaranum, sem hann þáði.
Líkast til var ætlun hans að sýna með þessu að hann væri ósáttur við að ég væri að snæða eitthvað sem ekki var keypt á hans veitingastað, en furðuleg aðferð til þess að flestra mati.
Sagan endaði þannig að ég var send aftur yfir götuna og nú til að kaupa hamborgara handa öllum við borðið, enda ekki hægt að standast svona gómsætan skyndibita.
Þjónninn virtist alveg sáttur þegar ég mætti með sex hamborgara, enda orðinn saddur og sæll og við gátum étið þá í friði í þetta skiptið.
Athugasemdir
Aumingja maðurinn, hann hlýtur að hafa verið voðalega svangur. Annars er gott að þjónar geri svona lagað ekki í dag. Ég er hrædd um að afleiðingarnar yrðu atvinnuleysi á háu stigi fyrir stétt þjóna ef þetta væri algeng hegðun hjá þeim.
Gústa sysir (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 10:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.